Fyrsti vinnudagurinn

Ég kom með rútunni kl 8.00.  Ég  beið í langan tíma fyrir utan dyrnar hjá Magnúsi bryta. Loks hitti ég konu sem heitir Hugrún Arnórsdóttir hún útvegaði mér skó og við gengum út í þvottahús þar sem Þóra tók á móti mér.  Hún var fljót að koma með það að það væru ekki til buxur á mig og sagði ,,Ætli ég verði ekki bara að senda þig heim”. Ég kváði við og sagði HEIM: (ég fór þá strax í vörn).  Margrét Héðins benti Þóru á það að þær ættu að leita af sér allan grun. Hún fann svo tvennar buxur á mig,  boli og jakka. Við Þóra fórum svo upp þar sem ég fékk skáp. Þar skipti ég um föt að því búnu. Ók Þóra mér út í Annex og kynnti mig fyrir Bryndísi sem var að hætta eftir nokkura mánaða starf og fór í vaktavinnu  í kerskála.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rauða Ljónið

Kondu sæll.  Nú hittur á vondan ég þekki þetta mál, best er fyrir þig að láta þetta  liggja það er bæði dagbókini fyrir bestu og fyrir þá starfsmenn sem þú ert að vitna í og nefnir með nöfnum.

Kv Svig

Rauða Ljónið, 11.1.2007 kl. 13:32

2 Smámynd: Alcan dagbókin

Þú hefur greinilega ekki lesið bloggið Herra Ljón því nöfnum hefur verið breytt.

Alcan dagbókin, 12.1.2007 kl. 10:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband